ÍmyndBóka fund

Kynningarmyndbönd og myndbönd fyrir samfélagsmiðla

Öll fyrirtæki eiga sögur að segja.
Flestar heyrast aldrei.

Segjum þínar sögur

Mynd segir meira en 1000 orð,
en hvað segir myndband?

Kynningarmyndbönd

Kynningarmyndbönd

  • Tala fyrir þig
  • Sjón er sögu ríkari
  • Mynd segir meira en 1.000 orð

Reykjavík

Fyrsti fundur er frír

Segjum þínar sögur.

Á fyrsta fundi kortleggjum við það sem er að gerast í rekstrinum þínum og finnum leiðir til að segja frá því myndrænt. Svo förum við yfir verð og veljum tökudaga. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.

Bóka fund

Sögur

Margar litlar sögur.
Eitt stórt myndband.

  • Örsaga 1
  • Örsaga 2
  • Örsaga 3
  • Örsaga 4
  • Örsaga 5
  • Örsaga 6
  • Örsaga 7
  • Örsaga 8
  • Örsaga 9
  • Örsaga 10
  • Örsaga 11
  • Örsaga 12
Söfnum efni allt árið í eitt gott kynningarmyndband.

Söfnum efni allt árið í eitt gott kynningarmyndband.

Tólf örsögur · samfélagsmiðlarEitt kynningarmyndband · 16:9

Afraksturinn

Heilt ár af sýnileika

Stöðugur sýnileiki. Án þess að þú þurfir að hugsa um það.

JANFEBMARAPRMAÍJÚNJÚLÁGÚSEPOKTNÓVDESÖRSÖGUR Á SAMFÉLAGSMIÐLASÖFNUM SAMAN FLOTTUSTU SKOTUNUMEITT KYNNINGARMYNDBANDFYRIR VEFSÍÐUNAFYRIR RÁÐSTEFNUNAUPPÁ SKJÁ Í ANDDYRINU
JANFEBMARAPRMAÍJÚNJÚLÁGÚSEPOKTNÓVDESFYRIR VEFSÍÐUNAFYRIR RÁÐSTEFNUNAUPPÁ SKJÁ Í ANDDYRINU
  1. ÖRSÖGUR Á SAMFÉLAGSMIÐLA
  2. SÖFNUM SAMAN FLOTTUSTU SKOTUNUM
  3. EITT KYNNINGARMYNDBAND

Pakkar

Pakki 1

Kynningarmyndband

Eitt kynningarmyndband í 16:9 fyrir vefsíðuna, ráðstefnuna og skjá í anddyrinu, eða í 9:16 fyrir samfélagsmiðla og kostaðar auglýsingar.

FYRIR VEFSÍÐUNAFYRIR RÁÐSTEFNUNAUPPÁ SKJÁ Í ANDDYRINU

Fá tilboðNánar →

Pakki 2 · Áskrift

Kynningarmyndband + samfélagsmiðlamyndbönd

Kynningarmyndbandið og tólf örsögur á samfélagsmiðla, ein á mánuði, allt árið. Fullt af flottum myndum fylgir.

JANFEBMARAPRMAÍJÚNJÚLÁGÚSEPOKTNÓVDESFYRIR VEFSÍÐUNAFYRIR RÁÐSTEFNUNAUPPÁ SKJÁ Í ANDDYRINU

ÁskriftNánar →

Ljósaveggur VSÓ Ráðgjafar: Vill sveitarfélagið þitt sturta peningum í klósettið? Tökum upplýstar ákvarðanir.
Dæmi: sýningarbás VSÓ Ráðgjafar, 2026

Pakki 3 · Sýningar

Markaðsherferð fyrir sýningar

Myndband, grafík í básinn, glærukynning og lendingarsíða sem tala saman. Ein skýr kynning á sýningunni og í öðrum miðlum.

Skoða pakkann

Ferlið

Komum þinni ímynd,
í mynd.

  1. Undirbúningur

    • Kortleggjum reksturinn á fyrsta fundi
    • Finnum sögurnar og sjónræna króka
    • Ákveðum umfang og tökudaga
  2. Tökur

    • Viðtöl, með eða án handrits
    • Drónatökur og timelapse
    • Fólkið, staðurinn og varan í mynd
  3. Eftirvinnsla

    • Klipping, lit- og hljóðvinnsla
    • Grafík og texti
    • Endurgjöf, svo skil fyrir hvern miðil
Vök Baths að kvöldi, fyrir og eftir litvinnslu

Klippiforrit

DaVinci Resolve

Vottun: DaVinci Resolve Colorist Certification frá Blackmagic Design.

Viðskiptavinir

Fyrirtæki sem eru farin að segja sögurnar sínar

  • ★★★★★
    „Við hjá Árvakri, útgefanda Morgunblaðsins og mbl.is, höfum unnið fjölmörg verkefni með Ímynd og erum afar ánægð með samstarfið. Jóel er vandvirkur, hugmyndaríkur og einstaklega þægilegur í samskiptum. Hann hefur unnið alls konar verkefni fyrir okkur bæði stór og smá og alltaf leysir hann þau af mikilli fagmennsku. Í fjölmiðlastarfi þurfum við oft að bregðast hratt við og þá er ómetanlegt að eiga Jóel að. Hann hefur hingað til alltaf getað reddað okkur, jafnvel með örstuttum fyrirvara. Við gefum Ímynd okkar bestu meðmæli og hlökkum til áframhaldandi samstarfs!“
    Silja JóhannesdóttirSölustjóri Morgunblaðsins og mbl.is
  • ★★★★★
    „Frábær reynsla! Jóel gerði myndband fyrir Vök Baths sem fangar stemninguna og umhverfið ótrúlega vel. Mjög fagleg vinnubrögð og auðvelt að vinna með honum. Mælum 100% með!“
    Vök Baths
  • ★★★★★
    „Ég hef unnið með Jóel í tveimur verkefnum og get ekki mælt nógu mikið með honum. Hann er einstaklega faglegur í allri nálgun – frá undirbúningi og hugmyndavinnu yfir í upptökur og eftirvinnslu. Jóel er fljótur að skilja markmið verkefnisins, setur fram skýrt storyboard og heldur vel utan um ferlið, sem gerir samstarfið bæði skilvirkt og mjög þægilegt. Útkoman er efni sem stendur upp úr! Frábær samstarfsaðili sem fær mín bestu meðmæli.“
    Tinna Bryde
  • ★★★★★
    „Við erum algjörlega í skýjunum yfir útkomunni frá Jóel í Ímynd Myndbandagerð, drengurinn er einfaldlega snillingur. Risa plús hvað hann er „professional“ en á sama tíma gull af manni og hrikalega skemmtilegur! Fyrirtækið okkar var að leita eftir öðruvísi markaðsefni, hann hlustaði, kom með hugmyndir og útkoman er svo miklu betri en við þorðum að vona. Við erum farin að huga að næstu verkefnum og okkur hlakkar til að fá Jóel til að vinna með okkur í að gera ógleymanlegt markaðsefni!“
    Adda HafborgFramkvæmdastjóri, Nordroof Ísland ehf
  • ★★★★★
    „Ég er einstaklega ánægð með samstarf mitt við Ímynd og fagmennskan er framúrskarandi. Mynd, hljóð og gæði voru til fyrirmyndar sem og öll vinnsla. Mikill metnaður var lagður í verkefnin sem við unnum að saman og skilaði sér alla leið. Ég mun án efa fá Ímynd aftur með mér í næstu verkefni.“
    Sjöfn Þórðardóttir

Allar umsagnir á Google

Algengar spurningar

Hvað gerir Ímynd?

Ímynd er myndbandsframleiðsla í Reykjavík sem gerir kynningarmyndbönd, efni fyrir sýningar og reglulegt efni fyrir samfélagsmiðla fyrir fyrirtæki. Við sjáum um allt ferlið, frá fyrsta fundi og undirbúningi yfir í tökur, klippingu, grafík, lit- og hljóðvinnslu, og skilum efninu í útgáfum fyrir vefinn, sýninguna og samfélagsmiðla.

Hvað kostar kynningarmyndband?

Verðið fer eftir umfangi: hversu fullmótuð hugmyndin er, fjölda tökudaga og tökustaða, og hversu mikla og flókna eftirvinnslu, grafík og hljóðvinnslu þarf. Á fyrsta fundi kortleggjum við verkefnið og förum yfir verð og tökudaga. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.

Hvernig virkar áskriftin?

Áskriftin er mótuð í samvinnu við ykkur: að jafnaði eitt kynningarmyndband og tólf örsögur fyrir samfélagsmiðla á ári, ein á mánuði, en fjöldinn er ákveðinn saman út frá því sem skiptir máli í rekstrinum yfir árið. Við söfnum bestu skotunum úr örsögunum í kynningarmyndbandið, sem nýtist á vefsíðunni, á ráðstefnum og á skjá í anddyrinu.

Hvernig fer ferlið fram?

Ferlið er í þremur skrefum. Í undirbúningi kortleggjum við reksturinn á fyrsta fundi, finnum sögurnar og sjónræna króka og ákveðum umfang og tökudaga. Svo koma tökur: viðtöl með eða án handrits, drónatökur og timelapse. Í eftirvinnslu sjáum við um klippingu, lit- og hljóðvinnslu, grafík og texta, og þú kemur með endurgjöf áður en við skilum útgáfum fyrir hvern miðil.

Í hvaða forriti klippið þið?

Við klippum og litvinnum í DaVinci Resolve. Ímynd er með DaVinci Resolve Colorist Certification frá Blackmagic Design, sem er vottun í litvinnslu frá framleiðanda forritsins.

Hvernig fer Ímynd með trúnaðarupplýsingar?

Ímynd lítur á allt sem kemur fram á fundum, í samtölum og við tökur sem trúnaðarmál. Upplýsingar um rekstur, áform og verkefni sem ekki hafa verið kynnt fara hvorki lengra né eru birtar, og ekkert efni er birt án samþykkis.

Takið þið upp utan höfuðborgarsvæðisins?

Já. Við tökum upp þar sem sagan gerist, líka utan höfuðborgarsvæðisins, til dæmis hjá Vök Baths á Austurlandi og í Bláfjöllum. Tökustaðir og tökudagar eru ákveðnir á fyrsta fundi.

Komum þinni ímynd, í mynd.