ÍmyndBóka fund

Þjónusta Ímyndar – myndbönd og kynningarefni fyrir fyrirtæki

Hvað viltu
kynna?

Flestir koma til okkar með eitt ákveðið verkefni, vöru eða þjónustu sem þarf að kynna. Veldu leiðina sem passar: herferð fyrir sýningu, kynningarmyndband eða áskrift að reglulegu efni. Ef þú ert ekki viss finnum við leiðina saman á fyrsta fundi.

Herferð fyrir sýningar

Algengar spurningar

Hvaða þjónustu býður Ímynd?

Ímynd býður þrjár leiðir: herferð fyrir sýningar, þar sem myndband, grafík í básinn, glærukynning og lendingarsíða mynda eina kynningu; kynningarmyndband um fyrirtæki, vöru eða verkefni; og áskrift að reglulegu efni fyrir samfélagsmiðla allt árið.

Hvaða leið á ég að velja?

Það fer eftir tilefninu. Ef framundan er sýning eða ráðstefna hentar herferð fyrir sýningar. Ef þú þarft eitt myndband sem kynnir fyrirtækið, vöruna eða verkefnið hentar kynningarmyndband. Ef þú vilt að fyrirtækið sé sýnilegt allt árið hentar áskrift. Á fyrsta fundi finnum við leiðina saman.

Er hægt að byrja smátt?

Já. Flestir byrja á einu verkefni, til dæmis kynningarmyndbandi eða efni fyrir eina sýningu. Reglulegt samstarf eða áskrift kemur oft í framhaldinu. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.

Eigum við að spjalla um næsta myndband?

Þrjátíu mínútna fundur, engin skuldbinding. Við förum yfir markmið, tímaramma og hvað hentar best.

Bóka fundHafa samband