Áskrift – regluleg myndbandsframleiðsla fyrir fyrirtæki
Stöðugur sýnileiki.
Allt árið.
Í áskrift færðu eitt kynningarmyndband og tólf örsögur fyrir samfélagsmiðla, eina á mánuði allt árið. Áskriftin er mótuð í samvinnu við ykkur og fjöldi örsagna ákveðinn saman út frá því sem skiptir máli í rekstrinum yfir árið. Við söfnum bestu skotunum úr örsögunum í kynningarmyndbandið. Margir byrja á einu verkefni og halda svo áfram í reglulegu samstarfi.
Sögur
Margar litlar sögur.
Eitt stórt myndband.

Söfnum efni allt árið í eitt gott kynningarmyndband.
Tólf örsögur · samfélagsmiðlarEitt kynningarmyndband · 16:9
Afraksturinn
Heilt ár af sýnileika
Stöðugur sýnileiki. Án þess að þú þurfir að hugsa um það.
- ÖRSÖGUR Á SAMFÉLAGSMIÐLA
- SÖFNUM SAMAN FLOTTUSTU SKOTUNUM
- EITT KYNNINGARMYNDBAND
Ferlið
Sami takturinn,
allt árið.
Undirbúningur
- Kortleggjum árið á fyrsta fundi
- Veljum sögurnar saman út frá atburðum ársins
- Setjum tökudaga á dagatalið
Tökur
- Reglulegir tökudagar yfir árið
- Viðtöl, dróni og timelapse
- Söfnum bestu skotunum jafnóðum
Eftirvinnsla
- Ein örsaga á mánuði, tilbúin til birtingar
- Útgáfur fyrir hvern miðil
- Kynningarmyndbandið úr bestu skotum ársins
Höldum fyrirtækinu sýnilegu
Segðu okkur hvað er að gerast í rekstrinum og hvar þið viljið sjást. Við kortleggjum árið saman á fyrsta fundi. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.
joel@imynd.is+354 866 3865Hentar þetta þér?
Hentar síður ef …
- tilefnið er eitt og tímasett; þá dugar eitt verkefni.
- enginn innanhúss getur tekið við efninu og birt það; við skilum því tilbúnu, birtingin er ykkar.
- þið viljið fyrst prófa samstarfið; byrjið þá á einu verkefni, það er algengasta leiðin.
Hentar þér ef …
- fyrirtækið á að vera sýnilegt allt árið án þess að þið þurfið að hugsa um það.
- samfélagsmiðlarnir ykkar þurfa reglulegt efni í sama stíl.
- þið viljið kynningarmyndband sem er safnað saman úr raunverulegum sögum ársins.
Tengt efni
Skoðaðu líka
- SamanburðurEitt verkefni eða áskriftHvenær eitt kynningarmyndband dugar og hvenær áskrift hentar betur: eitt tilefni á móti sýnileika allt árið með tólf örsögum og kynningarmyndbandi.Lesa meira →
- SamanburðurÍmynd eða innanhússHvenær eigið fólk með símann dugar og hvenær Ímynd bætir við: daglegt efni á móti utanaðkomandi auga, gæðum og samfellu.Lesa meira →
- ViðskiptavinirNýsköpunarfyrirtækiMyndbönd fyrir nýsköpunarfyrirtæki: varan, teymið og tilgangurinn útskýrð fyrir viðskiptavinum, fjárfestum og nýju starfsfólki, byrjað smátt.Lesa meira →
Algengar spurningar
Hvernig virkar áskriftin?
Áskriftin er mótuð í samvinnu við ykkur: að jafnaði eitt kynningarmyndband og tólf örsögur fyrir samfélagsmiðla á ári, ein á mánuði, en fjöldinn er ákveðinn saman út frá því sem skiptir máli í rekstrinum yfir árið. Við söfnum bestu skotunum úr örsögunum í kynningarmyndbandið, sem nýtist á vefsíðunni, á ráðstefnum og á skjá í anddyrinu.
Fyrir hverja hentar áskrift?
Fyrir fyrirtæki sem vilja vera sýnileg allt árið án þess að þurfa að hugsa um það. Margir byrja á einu verkefni, til dæmis kynningarmyndbandi, og halda svo áfram í reglulegu samstarfi.
Hvað kostar áskrift?
Verðið fer eftir umfangi: fjölda örsagna og tökudaga yfir árið, hversu fullmótaðar hugmyndirnar eru og hversu mikla eftirvinnslu, grafík og hljóðvinnslu þarf. Við gerum tilboð eftir samtal. Á fyrsta fundi kortleggjum við það sem er að gerast í rekstrinum og veljum tökudaga. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.
Eigum við að spjalla um næsta myndband?
Þrjátíu mínútna fundur, engin skuldbinding. Við förum yfir markmið, tímaramma og hvað hentar best.













