Myndbönd fyrir B2B-fyrirtæki – kynningarmyndbönd, útskýringar og sýningarefni
Flókin þjónusta,
útskýrð einfalt.
B2B-fyrirtæki selja sjaldan í einu símtali. Kaupandinn kynnir sér fyrirtækið, ber saman kosti og þarf að treysta því áður en hann bókar fund. Ímynd gerir myndböndin sem vinna þá vinnu: kynningarmyndband um fyrirtækið, útskýringarmyndbönd um þjónustuna og efni fyrir sýningar og ráðstefnur, og stofnandinn þekkir þennan heim eftir yfir tólf ár hjá B2B-fyrirtækjum.
Hvað þurfa B2B-fyrirtæki frá myndbandi?
- 01
Að útskýra þjónustuna á mannamáli
Verkfræði, ráðgjöf, hugbúnaður og þjónusta við fyrirtæki eru oft erfið að útskýra í texta. Eitt myndband sem svarar spurningunni „hvað gerið þið eiginlega?“ léttir á fyrstu fundunum.
- 02
Traust áður en fundurinn er bókaður
Kaupendur skoða vefsíðuna, LinkedIn og YouTube áður en þeir hafa samband. Myndband þar sem fólkið ykkar talar sýnir hver þið eruð og hvernig þið vinnið.
- 03
Efni fyrir sýningar og ráðstefnur
Fagsýningar og ráðstefnur eru dagarnir sem B2B-fyrirtæki hitta flesta kaupendur í einu. Básinn, skjárinn, glærurnar og lendingarsíðan þurfa að segja eina og sömu sögu.
- 04
Sýnileiki hjá fáum en mikilvægum kaupendum
Markhópurinn er oft lítill og vel skilgreindur. Reglulegt efni heldur fyrirtækinu í huga hans á milli þess sem hann kaupir.
Hvaða leið hentar B2B-fyrirtækjum?
- ÞjónustaKynningarmyndbandKynningarmyndband sem svarar því hvað þið gerið og fyrir hverja. Nýtist á vefsíðunni, í söluferlinu og á ráðstefnum.Lesa meira →
- ÞjónustaHerferð fyrir sýningarEin skýr kynning á einni vöru eða verkefni fyrir sýninguna: grafík í básinn, myndband á skjáinn, glærur og lendingarsíða.Lesa meira →
- ÞjónustaÁskriftEitt kynningarmyndband og tólf örsögur á ári, svo fyrirtækið sé sýnilegt allt árið án þess að þið þurfið að hugsa um það.Lesa meira →
Hvers vegna Ímynd fyrir B2B?
- Stofnandinn, Jóel Daði Ólafsson, hefur setið hinum megin við borðið: viðskiptafræðingur með yfir 12 ára reynslu hjá B2B-fyrirtækjum, sem skilur því reksturinn sem hann segir frá.
- Sami maður frá fyrsta fundi að lokaklippi: sá sem talar við þig í byrjun er sá sem klippir myndbandið.
- Allt sem kemur fram á fundum, í samtölum og við tökur er trúnaðarmál. Ekkert er birt án samþykkis.
Hvernig byrjar þetta?
- 01
Fyrsti fundur, frír
Við kortleggjum það sem er að gerast í rekstrinum, finnum fimm sögur og sjónræna króka og förum yfir verð og tökudaga.
- 02
Tökudagar
Viðtöl með eða án handrits, drónatökur og timelapse, þar sem sagan gerist.
- 03
Eftirvinnsla og skil
Klipping, lit- og hljóðvinnsla og grafík. Þú kemur með endurgjöf áður en við skilum útgáfum fyrir hvern miðil.
Verkefni
Dæmi úr sýningarsalnum
Kynningarmyndbönd, útskýringarmyndbönd og verkefnamyndbönd fyrir ráðgjafarverkfræðinga, tæknifyrirtæki og framkvæmdir.
KynningarmyndbandVör – ný farþegamiðstöð Faxaflóahafna við ViðeyjarsundHorfa á YouTube →
KynningarmyndbandVSÓ Ráðgjöf – BrandmyndbandHorfa á YouTube →
ÚtskýringarmyndbandHvað eru ráðgjafarverkfræðingar?Horfa á YouTube →
KynningarmyndbandLaki Power – Brand storyHorfa á YouTube →
ÚtskýringarmyndbandLaki Power – Drone Charging StationHorfa á YouTube →
VerkefnamyndbandLaki Power – Starlink installationHorfa á YouTube →
VerkefnamyndbandBrú yfir Stóru LaxáHorfa á YouTube →
VerkefnamyndbandÞróttur – nýr gervigrasvöllurHorfa á YouTube →
VerkefnamyndbandDalsskóliHorfa á YouTube →
VerkefnamyndbandSnjóframleiðsluvélar í BláfjöllumHorfa á YouTube →
Tengt efni
Skoðaðu líka
- ÞjónustaHerferð fyrir sýningarÍmynd mótar skýra kynningu á einni vöru eða verkefni og framleiðir samhangandi efni fyrir sýningu og aðra miðla: grafík í básinn, myndband á skjá, glærukynningu, lendingarsíðu og útgáfur fyrir samfélagsmiðla. Umfang er ákveðið fyrir hvert verkefni.Lesa meira →
- SamanburðurÍmynd eða markaðsstofaHvað markaðsstofa gerir sem Ímynd gerir ekki, og öfugt: stefna, birtingar og miðlar á móti framleiðslu myndbands og kynningarefnis. Oft best saman.Lesa meira →
- SamanburðurÍmynd eða framleiðslufyrirtækiHvenær stærra framleiðslufyrirtæki hentar betur en Ímynd og öfugt: stórar framleiðslur með tökuliði á móti einum ábyrgðaraðila frá fyrsta fundi að lokaklippi.Lesa meira →
Algengar spurningar
Hvers konar myndbönd henta B2B-fyrirtækjum?
Oftast þrenns konar: kynningarmyndband um fyrirtækið, útskýringarmyndbönd um einstaka þjónustu eða verkefni, og efni fyrir sýningar og ráðstefnur. Reglulegar örsögur á LinkedIn halda svo fyrirtækinu sýnilegu milli stærri verkefna.
Hvar á B2B-myndband að birtast?
Á vefsíðunni, þar sem kaupendur kynna sér fyrirtækið, á LinkedIn og YouTube, í söluferlinu sjálfu og á skjám á sýningum og ráðstefnum. Við skilum útgáfum sem passa hverjum stað.
Má nota starfsfólkið okkar í mynd í stað leikara?
Já, og það er yfirleitt trúverðugra. Viðtöl við fólkið sem vinnur verkin eru kjarninn í flestum okkar myndböndum, með eða án handrits.
Hvað ef verkefnið okkar er trúnaðarmál?
Allt sem kemur fram á fundum, í samtölum og við tökur er trúnaðarmál. Ekkert er birt án samþykkis, og við nefnum ykkur ekki sem viðskiptavin nema með ykkar leyfi.
Eigum við að spjalla um næsta myndband?
Þrjátíu mínútna fundur, engin skuldbinding. Við förum yfir markmið, tímaramma og hvað hentar best.
