ÍmyndBóka fund

Myndbönd fyrir tæknifyrirtæki – vörumyndbönd, útskýringar og hreyfimyndir

Sýndu
hvernig það virkar.

Tæknifyrirtæki selja oft eitthvað sem sést ekki: hugbúnað, kerfi, gögn eða búnað sem vinnur verkið sitt í hljóði. Ímynd gerir myndböndin sem sýna hvernig þetta virkar og hvers vegna það skiptir máli: vörumyndbönd, útskýringarmyndbönd með teiknuðum skýringarmyndum og efni fyrir sýningar og kynningar.

Bóka fundÞjónusta

Hvað þurfa tæknifyrirtæki frá myndbandi?

  1. 01

    Að gera hið ósýnilega sýnilegt

    Gögn, ferli og kerfi þarf að teikna upp. Skýringarmyndir og hreyfimyndir sýna það sem myndavélin nær ekki.

  2. 02

    Vörumyndband sem sýnir notkunina

    Hvernig varan er notuð, af hverjum og hvað breytist. Raunverulegir notendur og raunverulegar aðstæður þegar því verður við komið.

  3. 03

    Efni fyrir sýningar og kynningar

    Tæknisýningar, ráðstefnur og fundir með viðskiptavinum þurfa skjáefni, glærur og lendingarsíðu sem segja sömu sögu.

  4. 04

    Nýjungar og uppfærslur jafnóðum

    Varan þróast og það þarf að segja frá því. Reglulegt efni heldur viðskiptavinum og markaðnum upplýstum.

Hvers vegna Ímynd fyrir tæknifyrirtæki?

  • Teiknaðar skýringarmyndir og hreyfimyndir eru hluti af verkfærakistunni; dæmi má sjá á síðunni um herferð fyrir sýningar.
  • Klipping, lit- og hljóðvinnsla fer fram í DaVinci Resolve, og við erum með DaVinci Resolve Colorist Certification frá Blackmagic Design.
  • Stofnandinn er viðskiptafræðingur með yfir 12 ára reynslu hjá B2B-fyrirtækjum og tíu ára reynslu úr frumkvöðlafyrirtækjum.

Hvernig byrjar þetta?

  1. 01

    Fyrsti fundur, frír

    Við kortleggjum það sem er að gerast í rekstrinum, finnum fimm sögur og sjónræna króka og förum yfir verð og tökudaga.

  2. 02

    Tökudagar

    Viðtöl með eða án handrits, drónatökur og timelapse, þar sem sagan gerist.

  3. 03

    Eftirvinnsla og skil

    Klipping, lit- og hljóðvinnsla og grafík. Þú kemur með endurgjöf áður en við skilum útgáfum fyrir hvern miðil.

Algengar spurningar

Hvernig sýnir maður hugbúnað eða kerfi í myndbandi?

Með blöndu af raunverulegum notendum, skjámyndum og teiknuðum skýringarmyndum sem sýna ferlið sem sést ekki. Við ákveðum í undirbúningi hvað þarf að teikna og hvað er hægt að taka upp.

Gerið þið hreyfimyndir og skýringarmyndir?

Já. Teiknaðar skýringarmyndir og hreyfimyndir eru hluti af verkefnum okkar þegar þarf að sýna ferli, gögn eða samanburð sem myndavélin nær ekki. Dæmi má sjá á síðunni um herferð fyrir sýningar.

Hvar birtast vörumyndbönd tæknifyrirtækja?

Á vefsíðunni og vörusíðum, á YouTube og LinkedIn, í sölukynningum og á skjám á sýningum. Við skilum útgáfum sem passa hverjum stað.

Hvað með tæknilegar upplýsingar sem mega ekki fara lengra?

Allt sem kemur fram á fundum, í samtölum og við tökur er trúnaðarmál. Við förum yfir það í undirbúningi hvað má sýna og ekkert er birt án samþykkis.

Eigum við að spjalla um næsta myndband?

Þrjátíu mínútna fundur, engin skuldbinding. Við förum yfir markmið, tímaramma og hvað hentar best.

Bóka fundHafa samband