Herferð fyrir sýningar – myndband, grafík og lendingarsíða
Heildarlausn
fyrir sýningar.
Þú sendir okkur gögnin um vöruna eða verkefnið. Við mótum úr þeim skýra kynningu og framleiðum samhangandi efni fyrir sýninguna og aðra miðla: grafík í básinn, myndband á skjáinn, glærukynningu og lendingarsíðu. Umfangið ákveðum við saman fyrir hvert verkefni.
- Ein skilaboð
- Einn stíll
- Öll snið
- Skýrt umfang

Fjölnota efni
Hvað færðu í pakkanum?
Sömu skilaboðin og sama útlitið, frá tveggja metra vegg niður í símaskjá.

Grafík fyrir básinn
Einfaldur veggur sem dregur að athygli. Skrár eftir kröfum sýningarhaldara.

Myndband á skjá
Hljóðlaus lykkja í stuttum bútum sem skiljast þótt fólk gangi hjá.
Glærukynning
Ein hugmynd á glæru, birtist í skrefum þegar kynnir smellir áfram.

Lendingarsíða
Á vef viðskiptavinarins. QR-kóði í básnum vísar þangað og síðan lifir áfram eftir sýninguna.

Myndband fyrir vefsíðu
Sama sagan, með hljóði og í lengd sem hentar vefnum.

Útgáfur fyrir samfélagsmiðla
Lóðrétt, ferkantað og með texta, því flestir horfa án hljóðs.
Dæmi: efni sem Ímynd vann fyrir sýningarbás VSÓ Ráðgjafar á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026.
Ekki fylgja allar afurðir hverju verkefni. Við mótum umfangið með þér eftir þörfum.
Við sjáum um öll samskipti við sýningarhaldara, svo básinn sé settur upp með réttum sniðum og á réttan hátt. Auglýsingakaup og rekstur samfélagsmiðla fylgja ekki; við skilum efninu tilbúnu til birtingar.
Tímalínan
Byrjar á undan sýningunni.
Endar ekki með henni.
Sama efnið vinnur á þremur tímabilum. Hér sést hvað gerir gagn hvenær.
Vikurnar á undan
Fyrir sýninguna
- Stutt kynning á samfélagsmiðlaMeð básnúmerinu, svo fólk viti hvert það á að koma.
- Lendingarsíðan fer í loftiðBoðið á sýninguna vísar þangað.
- Glærurnar tilbúnarKynnirinn fær tíma til að æfa sig.
Sýningardagarnir
Á sýningunni
- VeggurinnEinfaldur veggur sem dregur að athygli.
- SkjárinnHljóðlaus lykkja, enginn þarf að stoppa.
- GlærurnarFyrir fundi og kynningar í básnum.
- QR-kóði á lendingarsíðunaGestir taka efnið með sér í símann.
Vikurnar á eftir
Eftir sýninguna
- Myndbandið á vefinnSama sagan, nú með hljóði og í fullri lengd.
- Útgáfur fyrir samfélagsmiðlaEfni í vikurnar á eftir, ekki bara einn dag.
- Lendingarsíðan tekur viðÞeir sem komu við í básnum finna framhaldið þar.
Við skilum efninu tilbúnu á réttum tíma. Birtingin er í ykkar höndum eða ykkar samstarfsaðila.
Ferlið
Frá gögnum
í fjölnota efni.
1Þú sendir gögn
- Skýrslur
- Kynningar
- Tenglar
2Við búum til efni
Lykilmynd- Grafík
- Myndefni
3Fjölnota efni

Dæmi: sýningarbás VSÓ Ráðgjafar, 2026 - Lykilmynd á ljósavegg
- Myndband á skjástandi
- Vefurinn og samfélagsmiðlar
- Glærukynning í tölvu
- 01Lykilmynd á ljósavegg
- 02Myndband á skjástandi
- 03Glærukynning í tölvu
- 04Vefurinn og samfélagsmiðlar
Hvert skref er gert í samvinnu
Sama efnið alls staðar
Hvernig er ferlið?
Gögn og rannsókn
Þú sendir skýrslur, kynningar og tengla. Við kynnum okkur efnið og finnum með þér hvað þarf að komast til skila.
Hugmyndir og myndhandrit
Tillaga að frásögn, texta og myndmáli: lykilmyndir eða skýringarmyndir, storyboard og sýnishorn af skotum.
Framleiðsla og yfirferð
Tökur, klipping, grafík, hreyfingar, lit- og hljóðvinnsla eftir því sem við á. Þú kemur með endurgjöf og við samþykkjum saman.
Afhending
Samþykkt efni aðlagað að þeim miðlum og flötum sem við sömdum um.
Segðu okkur frá sýningunni
Þú þarft ekki að vera með verkefnið útfært. Merktu við það sem þér dettur í hug og við finnum umfangið saman. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.
joel@imynd.is+354 866 3865Hentar þetta þér?
Hentar síður ef …
- það vantar aðeins auglýsingakaup eða birtingar; það fylgir ekki. Básinn sjálfan setur sýningarhaldari upp, en við sjáum um samskiptin við hann.
- þú þarft einhvern til að reka samfélagsmiðlana eftir sýninguna; við skilum efninu tilbúnu, birtingin er ykkar.
- kynningin er þegar tilbúin og vantar bara einn tökudag; þá getur freelancer hentað betur.
Hentar þér ef …
- sýning eða ráðstefna er framundan og það er ein vara eða eitt verkefni að kynna.
- þú vilt að básinn, skjárinn, glærurnar og vefurinn segi eina og sömu sögu.
- þú átt gögnin en ekki kynninguna, og vilt einn ábyrgðaraðila á efninu.
Tengt efni
Skoðaðu líka
- ViðskiptavinirB2B-fyrirtækiMyndbönd fyrir fyrirtæki sem selja öðrum fyrirtækjum: kynningarmyndbönd, útskýringar og efni fyrir sýningar sem byggja upp traust áður en fundur er bókaður.Lesa meira →
- ViðskiptavinirTæknifyrirtækiMyndbönd fyrir tæknifyrirtæki: vörumyndbönd, útskýringar og teiknaðar hreyfimyndir sem sýna hvernig hugbúnaður, búnaður og kerfi virka.Lesa meira →
- SamanburðurÍmynd eða markaðsstofaHvað markaðsstofa gerir sem Ímynd gerir ekki, og öfugt: stefna, birtingar og miðlar á móti framleiðslu myndbands og kynningarefnis. Oft best saman.Lesa meira →
Algengar spurningar
Hvað er innifalið í herferð fyrir sýningar?
Það fer eftir verkefninu. Afurðirnar geta verið grafík fyrir sýningarbás eða ljósavegg, myndband á skjá í básnum, glærukynning, lendingarsíða, myndband fyrir vefsíðu og útgáfur fyrir samfélagsmiðla. Við ákveðum saman hvað á við og skilgreinum umfangið fyrir hvert verkefni.
Hvað þarf ég að senda ykkur?
Það sem þú átt um vöruna eða verkefnið: skýrslur, kynningar, tengla og annað efni. Það þarf ekki að vera búið að útfæra neitt. Við kynnum okkur efnið, rannsökum það og finnum með þér hvað þarf að koma fram og hvernig best er að kynna það.
Sjáið þið um prentun og uppsetningu bássins?
Við útbúum skrárnar fyrir básinn eftir kröfum sýningarhaldara og sjáum um öll samskipti við hann, svo básinn sé settur upp með réttum sniðum og á réttan hátt. Sýningarhaldari setur básinn sjálfan upp. Auglýsingakaup og rekstur samfélagsmiðla fylgja ekki.
Hvað kostar herferð fyrir sýningar?
Verðið fer eftir umfangi: hvaða afurðir eru í pakkanum, hversu fullmótuð hugmyndin er, hvort það þarf tökur, hversu margar útgáfur og hversu mikla og flókna eftirvinnslu, grafík og hljóðvinnslu þarf. Við gerum tilboð eftir samtal um umfangið. Það kostar ekkert að taka fund og fá tilboð.
Nýtist efnið eftir sýninguna?
Já. Efnið er fjölnota: sömu skilaboð og sama útlit í básnum, á skjánum, í glærunum, á vefnum og á samfélagsmiðlum. Lendingarsíðan nýtist til að fylgja sýningunni eftir við þá sem vilja vita meira.
